laugardagur, apríl 17
Nýtt Lúkk
Eins og þið takið ef til vill eftir. Ég ætla að fínpússa þetta betur og skella kommentinu aftur inná. Bíðið bara róleg! Engan æsing takk.

Tónleikar
Jæja, ég skellti mér á tónleika í gær. Trabant (hljómsveitin en ekki bíllinn) var að spila á Kapital. Það var geggjað stuð. Þeir eru helvíti góðir á sviðinu drengirnir í Trabant. Ég veit nú samt ekki hvernig þetta hefði endað ef tónleikarnir hefðu verið klukkutíma lengur því þeir voru komnir á nærbuxurnar (þetta var meira svona pínuskýla hjá einum, ullabjakk) og kveiktu á blysum þarna í lokin. Þeir voru rosalega læf og þeir fíluðu sjálfa sig alveg í tætlur og það smitað útfrá sér. Já, svo vissi ég ekki að Dj Magic væri að spila með Trabant. Er hann kannski í hljómsveitinni?
Það var líka fullt af skrautlegu fólki þarna (sko bæði ölvað og í skrýtnum fötum), props fyrir það. Svo var ágætis dúó að spila á undan Trabant, þeir voru með svona eitís karókí hiphop. Svona nett hallærislegt en samt nokkuð töff.

þriðjudagur, apríl 13
Bölva það
Ég bölva það sí og æ að geta ekki sett myndir með færslum!
Ég auglýsi eftir fríu heimasvæði.
Takk

Tími ræsisrottunnar
Banksy er graffari sem hefur verið að koma sér í fréttirnar í listheiminum fyrir ýmsar skemmtilegar uppákomur. Nýjasta verkið hans, "Banksus Militus Ratus", uppstoppuð rotta með sólgleraugu í glerkassa sem hann smyglaði inná safn og hengdi uppá vegg. Hjá rottunni var pínulítill spreybrúsi og texti "Our time will come".
"Attributed to an increase in junk food waste, ambient radiation and hardcore urban rap music these creatures have evolved at an unprecedented rate."
Sjá nánar hér. Auðvitað ólöglegt en samt svona helvíti sniðugt, að mínu mati.
Hann gerði líka styttu sem var nákvæmlega eins og "The Thinker", eftir Rodin, nema að hann setti svona trúðahúfu á hausinn á styttunni og kallaði hana "The Drinker". Þessa styttu sína ætlaði hann að setja á ýmsa opinbera staði í leyfisleysi. Það endaði nú fyrr en ætlunin var því styttunni var rænt og Banksy fékk sent hótunarbréf þar sem lausnargjalds var krafist, annars yrði Drekkarinn bara drepinn.
Svona lagað vekur upp þá umræðu, ekki ný umræða það, hvort að þetta sé list eða ekki. Alveg síðan menn náðu fullkomnun í anatomíu á seinni hluta endurreisnarinnar, hafa listamenn reynt að fara nýjar leiðir, í sambandi við nálgun verka, sjónarhorn o.fl. En allar breytingar eru umdeildar og íhaldssemin nær alltaf taki á einhverjum. Eins og staðan er núna gengur það í raun ekkert að vera framsækinn myndlistamaður nema að maður gerir eitthvað nýtt og spennandi. En er hægt að draga mörkin einhvers staðar og ef svo, hvar eiga þau að vera?
Er Banksy listamaður eða bara einhver helvítis glæpon?
Þetta ER list!