mánudagur, janúar 22
Rökleg Þróun Skynzeminnar
Beggi Kallinn hefur stigið skref uppá við og fært sig yfir til moggawebloggabloggaranna. Eina ástæðan fyrir því er þægilegra kerfi og hýsing fyrir myndir sem hægt er þá að birta með færslum. Það er sú röklega þróun skynzeminnar sem hefur átt sér stað í bloggsögu minni. Einnig mun ég hafa skipt um ídentited og kalla mig hér eftir Bergsvein Th. Takk fyrir mig.
http://bergsveinnth.blog.is

þriðjudagur, nóvember 21
laugardagur, nóvember 18
Góða kvöldið!
Jæja, ég skrifa héðan úr eldhúsinu í hafnarfirði, þráðlausa netið dettur inn og út eftir þörfum (Could not connect to blogger.com) og ég þykist vera að lesa Salman Rushdie. Ekki nóg með það að ég sé að lesa bók eftir hann á ég víst að lesa greinar eftir hann. Hann er skemmtilegur, en þetta er túmöts! yfirgengilegt. Ég væri alveg til í að lesa þetta allt saman, en hef ekki tíma. Því fljótlega kemur eitthvað annað í stað Rushdie. Eitthvað annað sem ég þarf að lesa, langar að lesa en næ ekki yfir.
En það er nú allt gott og blessað, eins og gengur og gerist að jafnaði. Ekki er hægt að komast yfir allt. Þú getur ekki heimsótt alla í heiminum!! Samt, það væri alveg eins hægt ef.... Já eða ekki.

sunnudagur, febrúar 6
laugardagur, janúar 29
Listaverk
Hafiði heyrt um ræstingarkonuna sem vann í listasafni sem henti einu listaverki því hún hélt að það væri rusl.
Hafiði heyrt um manninn sem var á listasafni og prófaði að tæma úr eldspýtustokk í myndarlega hrúgu á gólfið og seinna lofuðu allir listamógúlarnir "listaverkið".
Hafiði heyrt um manninn sem teiknaði hringi og nokkrar línur á blað og seldi það síðan fyrir fjórtán þúsundkall.
Hafiði heyrt um listamógúlinn sem skoðaði gaumgæfilega ljósrofa eins herbergis listasafns því hann hélt það væri listaverk.
Það eru alveg örugglega til svona sögur í þúsundatali, ég veit ekki alveg hvort að þessar sögur séu sannar. En í fréttum Rúv var nýlega sagt frá atviki sem þessu. Þar var sagt frá einhverjum formanni umhverfisnefndar í einhverjum bænum í Þýskalandi. Hann var á gangi um eitt af torgum bæjarins og sá allt í einu einhverja helvítis járnhrúgu sem stakk svo í augun að nánast blæddi. Hann hringdi strax í ruslakarlana og skipaði þeim að fjarlægja þennan viðbjóð eins og skot. Það gerðu ruslakarlarnir enda ekki þekktir fyrir annað en góð og sómasamleg vinnubrögð. Daginn eftir kemst formaðurinn fyrrnefndi að þarna á ferð var ekki einhver helvítis járnhrúga heldur nefnilega listaverk!
Carl André sagði einu sinni að það væri svo sniðugt við listaverkin sín að ef hann seldi þau ekki gæti hann bara skilað múrsteinunum aftur í verksmiðjuna.

fimmtudagur, janúar 20
Deilum með einum og öðrum
Hörku ritdeilur eiga sér stað í "Commentunum" á síðustu færslu. Ég átti síðasta orðið, fyrir utan "Sjitt"ið hans Einars.
Ég var að velta því fyrir mér, er það nokkurn tímann hægt að vinna ritdeilur? Endar þetta yfirleitt ekki að annar aðilinn getur ekki svarað hinum vegna bræði, eða eitthvað. Eða gildir kannski málshátturinn Sá vægir sem vitið hefur meira.. ? Það gildir að minnsta kosti ekki í þeirri ritdeilu sem á sér stað hér á Beggabloggin'. Þar er keppt um hver mun eiga síðasta orðið!
Engan aumingjaskap takk fyrir og bless!

miðvikudagur, janúar 12
Skólarapp
Jæja, nú er skólaskrattinn bara byrjaður
ég átt' að kaupa bók en hún var ekki til maður
svo nú er ég bókalaus og þokkalega pirraður
Nei nei, bókin var sko til og ég plöggaði meirað segja afslátt. Þannig að ég er ekkert pirraður. En þetta er enginn smá doðrantur, átti að kosta áttaþú sundkalla. En eins og kennarinn orðaði þetta þá er þetta gott kílóverð. "Get the picture"? (nærðu myndinni?)
Það er sama sagan með tímana hjá mér, allir nema einn eftir hádegi. Ég hef slæma reynslu á því að reyna að vakna snemma til þess að læra þegar allir fyrirlestrar eru svona seint. Ég held samt að ég geti ekki annað en bætt mig í því, svo það er ágætt. Svo auðvitað ætlar maður sér stóra hluti núna þegar þetta er að komast af stað eftir mánaðar jólafrí. Maður þarf að bæta sig í heilmiklu.
Þú mátt ekki bæta mig þó svo að ég megi það.

föstudagur, nóvember 26
laugardagur, ágúst 21
Menningarnótt
Jæja, ætli maður verði ekki menningarlegur í kvöld og helli sig blindfullan. En fyrst kíkir maður kannski á eitthvað af þeim 230 viðburðum sem eru í gangi í dag. 230! Djöfulli mikið, af hverju er þessu bara ekki dreift yfir á nokkra daga, jafnvel eina helgi. Ekki hafa þetta allt á einum degi og kalla þetta síðan menningarnótt þegar meiri parturinn af dagskránni klárast fyrir klukkan 23. Ég sem hélt að nóttin væri rétt að byrja þá. Hin sanna menningarnætur stemning byrjar ekki fyrr en fullt af fullu fólki fer á stjá niðrí bæ, eftir klukkan 23.
Sjáumst eftir ellefu.